aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Baráttumál:   Gegn ruslpósti | Stefgjöld á tölvubúnaði |

Baráttumál

Félag íslenskra netverja er neytendasamtök þeirra sem nota netið og stendur vörð um vöxt netsins og frelsi til tjáskipta og samskipta eins og kveðið er á um í lögum félagsins.

Upplýsingin er okkar besta vopn og er Netið kjörin vettvangur fyrir upplýsinga- og skoðanaskipti.

Mikilvægt er að þeir sem veita alhliða fjarskiptaþjónustu séu meðvitaðir um mikilvægi upplýsingaþjóðfélagsins og komi til móts við eðlilegar kröfur um fjölbreytta þjónustu og magnafslátt í nýju og breyttu neyslumynstri. Mikilvægt er að þetta tækifæri verði Netinu til góða og komi fram í bættri og stóraukinni þjónustu.

Ennfremur þarf að efla samstarf við menntakerfið, menninguna og þá sem minna mega sín til að móta uppbyggingu notkunar netsins á Íslandi.

Félagið leggur áherslu á frelsi einstaklinga og fyrirtækja til tjáskipta og verslunar á netinu. Stefnumótun fer fram á póstlistum og á fréttaþræðinum news:is.netverjar og eru allir velkomnir.

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna