aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Baráttumál:   Gegn ruslpósti | Stefgjöld á tölvubúnaði |
Gegn ruslpósti:   Herferð |

Átak gegn ruslpósti á netinu.

Berjumst gegn ruslpósti!

Ruslpóstur á netinu hefur alla tíð verið litinn hornauga af netverjum vítt og breitt um heiminn. Þar kemur tvennt helst til.

Ruslpóstur er pirrandi. Það er afar auðvelt að nota þartilgerð forrit til að safna saman tugþúsundum tölvupóstfanga héðan og þaðan, og senda svo mörg auglýsingabréf á þau öll á nokkrum mínútum. Ef allir gerðu þetta þá væru pósthólfin okkar troðfull af rusli á hverjum degi. Það er engin örugg leið til að þekkja raunveruleg bréf frá ruslpóstinum nema sú að opna og lesa hvert einasta bréf!

Ruslpóstur er þjófnaður. Móttakendur borga sendingarkostnaðinn og geta ekki neitað að greiða. Það er einmitt það sem gerir það svo auðvelt að senda ruslpóst, það kostar sendandann nefnilega næstum ekkert. Með venjulegum bréfapósti (sniglapósti) þá borgar sendandi kostnaðinn en netið er hinsvegar tog-tækni þar sem móttakandi borgar. Ruslpóstur eykur beinlínis kostnað internetþjónusta, vegna aukinnar notkunar á bandbreidd inn á við og aukins álags á vélbúnað, og hækka þannig verð þjónustunnar til neytenda.

Ennfremur er ruslpóstur ólöglegur á Íslandi. Árið 2000 var 14. grein laga um húsgöngu- og fjarsölusaminga breytt þ.a. það næði yfir tölvupóst. Þetta ákvæði veitir neytendum umtalsverða vernd gegn ruslpósti, en það hefur í för með sér að ólöglegt sé að senda ruslpóst nema þess hafi verið gætt að enginn móttakandi hafi áður afþakkað beina markaðssókn hjá Hagstofu Íslands eða með sérmerkingu í símaskránni. Jafnframt er bannað að senda einstaklingi fleira en eitt bréf með tölvupósti án þess að hann hafi óskað eftir áframhaldandi samskiptum. Enn sem komið er hefur ekki reynt á lögin, en ljóst er að nokkur íslensk fyrirtæki brjóta þau dags daglega. Það er meðal markmiða átaksins að vekja athygli almennings á þessi lög og láta reyna á þau.

Félagið hvetur alla netverja til að skipta ekki við aðila eða fyrirtæki sem senda frá sér ruslpóst á netinu.

Styddu átakið gegn íslenskum ruslpósti og taktu þátt í áróðursherferðinni.


Áhugaverðar síður:

Erlend samtök gegn ruslpósti:

Annað:

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna