Stefgjöldum á tölvubúnaði mótmælt.
29. janúar síðastliðinn skrifaði
Björn Bjarnason menntamálaráðherra undir
reglugerð 125/2001 um innheimtu höfundarréttargjalda. Reglugerðin hefur það
í för með sér að nú eigi að leggja stefgjöld á tóma stafræna miðla á borð
við óskrifaða geisladiska og
tæki til þess að skrifa á þá. Á sama tíma voru skrifararnir færðir í
töluvert dýrari tollflokk.
Þessi breyting hefur í för með sér mjög mikla hlutfallslega hækkun á verði
tómra geisladiska og geisladiskaskrifara, hækkun sem að mati Netverja er með
öllu óréttlætanleg. Netverjar hafa sýnt mikla samstöðu í þessu máli, en 3.
Mars höfðu rúmlega 15.000 manns skrifað undir
undirskriftarlista til að mótmæla gjaldtökunni.
Hér má finna nánari upplýsingar um baráttuna.
Áhugaverðar síður:
|