aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Baráttumál:   Gegn ruslpósti | Stefgjöld á tölvubúnaði |
Stefgjöld á tölvubúnaði:   Undirskriftarlisti | Sakleysisyfirlýsing |

Undirskriftalistinn

Undirskriftum var safnað á síðunni http://www.quake.is/motmaeli/, en stofnandi listans og umsjónarmaður hans heitir Daníel Rúnarsson. Söfnunin gekk ótrúlega hratt og vel fyrir sig, á fyrstu tveimur sólarhringum söfnuðust yfir 10.000 netföng og enn var að bætast á listann þegar honum var lokað - en þá höfðu tæplega 16.000 manns skráð sig.

Netverjar hýsa hér afrit af undirskriftarsíðunni.

Afhending

Listinn var afhentur menntamálaráðherra á tröppum Alþingisshússinns, þann 7. Mars s.l. klukkan 15:00. Viðstaddir voru fulltrúar Netverja og undirskriftarsöfnunarinnar, ásamt hópi mótmælenda og fjölmiðla. Hér má sjá myndir af afhendingunni.

Tölfræði

Alls voru 15.941 undirskriftir og nöfn á listanum. Þegar endurtekningum og ógildum kennitölum var sleppt voru eftir 15.236 undirskriftir.


Eftirfarandi rit og tölur eru unnin upp úr löglegum kennitölum listans, án endurtekninga. Ef smellt er á ritin þá má sjá stærri útgáfur.


Aldursdreifing

Kjósendur

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna