| Þetta er afrit af upprunalegri síðu undirskriftarlistans, sem hafði slóðina http://www.quake.is/motmaeli/. Afritið var tekið kl. 17:30 þann 7. Mars 2001. Slóðum hefur verið breytt til að vísa á afrit í stað frumrits. |
Netverjar, stefgjöld |
Miðvikudaginn 7. mars mun listinn verða afhentur fyrir utan Alþingishúsið kl: 15:00. Við hvetjum alla til að mæta og sýna viljann í verki. Guðmundur Ragnar, formaður Félags Netverja, mun afhenda listann fyrir hönd okkar sem að honum stöndum og mun Menntamálaráðherra taka við honum.
Menntamálaráðherra hefur sent frá sér tilkynningu um lækkun á gjaldtöku óskrifaðra geisladiska um 50%. Ráðherra ákvað einnig að ekki skyldi innheimt höfundarréttargjald af tölvum með innbyggðum geislaskrifurum.
Að mati aðstendenda listans sem og stjórnar Félags Netverja er þessi tilkynning skref í rétta átt, en er í raun 50% of stutt skref, gjaldtakan á engan veginn rétt á sér, 17kr eða 35kr, og er það markmið okkar að hún verði felld niður algjörlega.
Nánar hér
Þeim sem vilja taka virkan þátt í umræðunni er bent á irc-rásina #netverjar.is á irc.ircnet.is.
Bendi öllum á að lesa þessa grein.
Í henni er greint frá því að hætt var við gjaldtöku á óskrifaða-geisladiska í danmörku eftir 2 vikur. Ástæðan: Mótmæli. Svona dæmi gefa okkur byr undir báða vængi og sýna að lýðræði er til, allavega í Danmörku. Nú er bara að bíða og sjá hvað Menntamálaráðherra gerir.