From: thorunn.j.hafstein@mrn.stjr.is Subject: Re: Uppkast að greinargerð um stefgjaldafund Fimmtudagsins (endursent) To: "Bjarni R. Einarsson" Cc: johanna.maria@mrn.stjr.is Message-ID: Date: Fri, 2 Mar 2001 12:43:21 +0000 Sæll Bjarni og þakka þér fyrir þess sendingu og fyrir að gefa mér kost á að lesa frásögn þína af fundi okkar. Því miður er óhjákvæmilegt að mínu mati að breyta textanum þínum vegna þess að reifun þín á því sem fram kom af minni hálfu er ekki alveg rétt heldur því miður röng þar sem þú segir: ,, Að þeirra mati gerir hún það ekki, því þó reglugerðin kveði á um að ákveðin gjöld skuli leggja á miðla sem eingöngu eru ætluð til afritunar á t.d. tónlist eða myndefni, þá banni þau ekki álagningu gjalda á miðla sem hafa blandað hlutverk.". Þetta kom ekki fram af okkar hálfu. Miðað við ánægjulegan fund okkar í gær þykist ég vita að hér er ekki um meinbægni að ræða af þinni hálfu heldur örlitla ónákvæmni við skrifin sem leiðir til allt annarrs skilnings á textanum. Ég þakka þér fyrir að gefa mér kost á að leiðrétta þetta. Tillaga mín að nýjum texta er svona Jóhanna og Þórunn óskuðu eftir að koma á framfæri ástæðunum fyrir reglugerðarsetningunni. Alþingi hefði ákveðið að innheimta bæri 35. kr. af böndum, diskum, plötum eða öðrum hlutum til upptöku hljóðs eingöngu og 100 kr. af böndum, diskum, plötum eða öðrum hlutum til upptöku mynda, eftir atvikum ásamt hljóði. Þess utan ætti að greiða 4% gjald af innflutningsverði eða framleiðsluverði tækja ef um innlenda framleiðslu er að ræða. Ráðherra bar að setja reglugerð um gjaldtökuna þar á meðal af hvaða hlutum og tækjum gjöldin skyldu greidd. Heimildir í lögunum til að lækka gjaldið voru að nokkru nýttar. Reglugerðin hefði því fulla stoð í lögum. Einnig vildu þær að það kæmi fram að höfundaréttargjöldin hefðu ekki það hlutverk að bæta upp fyrir hugsanlegan þjófnað á hugverkum. Þrátt fyrir það að höfundalögin tryggðu höfundi einkarétt á því að gera eintök af verki sínu væri gerð víðtæk takmörkun á þeim einkarétti í höfundalögunum. Takmörkunin felur það í sér að einstaklingum er heimilt - án þess að spyrja höfundinn - að gera eintök af verkunum til einkanota eingöngu. Heimildin er því skilyrði bundin að eintökin séu aðeins höfð til einkanota sem eru mjög takmörkuð not. Höfundaréttargjöldin snertu einvörðungu þessa heimiluðu eintakagerð til einkanota og byggjst þau á því sjónarmiði að eðlilegt sé og sjálfsagt að rétthafar fái bætt það tjón sem leiðir af þverrandi sölu hugverka vegna hinna heimiluðu einkanota og auk þess greiðslur fyrir þau auknu afnot hugverka sem ný tækni hlýtur óhjákvæmilega að hafa í för með sér. Á þessum forsendum hefur gjaldtakan byggst allt frá árinu 1984. Það væri af og frá að verið væri að þjófkenna einn eða neinn með þessu. Þakka þér svo aftur fyrir ánægjulegan fund og og góð samskipti. Með góðri kveðju Þórunn "Bjarni R. Einarsson" To: johanna.maria@mrn.stjr.is, thorunn.j.hafstein@mrn.stjr.is Subject: Uppkast að greinargerð um stefgjaldafund Fimmtudagsins (endursent) 02.03.2001 11:54 Sælar, Svarnetföngin úr bréfinu frá ykkur um daginn virkuðu ekki þegar ég reyndi að senda ykkur meðfylgjandi bréf - ég fann netföngin ykkar á vef menntamálaráðuneytins. Ef ég heyri ekkert í ykkur fyrir 15:00 geri ég bara ráð fyrir að þið séuð sátt við textann og sendi félagsmönnum bréfið. ----- Forwarded message from "Bjarni R. Einarsson" ----- Date: Thu, 1 Mar 2001 23:27:52 +0000 From: "Bjarni R. Einarsson" To: stjornin@netverjar.is Cc: "/c=is/admd=isgatt/prmd=/o=notes/s=Hafstein/g=(232)orunn/i=J/" @blik.skima.is, Þórunn J. Hafstein <"/c=is/admd=isgatt/prmd=/o=notes/s=Hafstein/g =(232)orunn/i=J/"@blik.skima.is> Subject: Uppkast að greinargerð um stefgjaldafund Fimmtudagsins Sæl, Á þessari síðu: http://bre.klaki.net/dagbok/faerslur/983463031.shtml má finna uppkast mitt að greinargerð um fundinn í morgunn. Ég stefni að því að senda félagsmönnum (ætti kannski bara að senda öllum) afrit af þessum texta á morgunn, uppúr hádegi þegar allir hafa fengið tækifæri til að gera athugasemdir. Textinn yrði jafnframt birtur opinberlega í dagbók minni og á vef félagsins. Ég hvet ykkur hjá ráðuneytinu til að gera athugasemdir ef ykkur finnst að ykkur vegið, eða trúnaðarmál koma fram. Við Netverjar viljum halda þessum samskiptum eins góðum og mögulegt er! (Annars vona ég innilega að þetta berist - ég verð að játa að ég hef aldrei slegið inn jafn löng og illlæsileg netföng og netföng ykkar hjá Menntamálaráðuleytinu - það væri kannski góð hugmynd að láta tæknimann kíkja á þetta.) ----- End forwarded message ----- -- Bjarni R. Einarsson PGP: 02764305, B7A3AB89 bre@netverjar.is -><- http://bre.klaki.net/ Netverjar gegn ruslpósti: http://www.netverjar.is/baratta/ruslpostur/