aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Fréttir:   Félagið | Baráttan | Netið | - | Eldri fréttir | Heimildir |

Af baráttunni


Netverjar gegn sölu grunnnets með Landssímanum - (01.02.2001)

Þar sem til stendur að selja Landssíma Íslands vill Félag Netverja koma á framfæri áhyggjum og efasemdum vegna hugmynda um sölu grunnnetsins sem hluta af Landssímanum.

Hugmyndin ber vott um skilningsleysi á hagsmunum allra aðila sem málið varðar. Þær tillögur sem fram hafa komið geta því tæpast orðið niðurstaða þessa máls.

Að hafa grunnnetið í einkaeign stærsta fyrirtækisins á þessum markaði kemur til með að torvelda samkeppni í verði og þjónustu. Þessar sömu efasemdir koma fram í þeim tillögum sem nú liggja fyrir: "kveðið sérstaklega á um þá þjónustu sem fyrirtækinu ber að veita til að tryggja almenningi og atvinnulífinu jafnan aðgang að tiltekinni lágmarksþjónustu" (úr skýrslu Framkvæmdanefndar um einkavæðingu, á vef Samgönguráðuneytisins).

Þeir hagsmunir sem við teljum mikilvægasta varða framboð og verðlag á hverskonar nýrri þjónustu á sviði samskipta og upplýsingatækni.

Þessir hagsmunir verða ekki tryggðir með löggjöf eða handstýringu. Landssíminn nær ekki að njóta sín sem fyrirtæki í samkeppni ef stjórnvöld ætla sér að hafa bein afskipti af verði og þjónustu sem hann veitir. Samkeppnisaðilar eiga ekki að þurfa að bera hugmyndir sínar um nýja þjónustu undir opinbera eftirlitsaðila, stjórnvöld eða stærsta fyrirtækið á markaðinum.

Stjórnvöld á Íslandi hljóta að líta til þess hvernig umhverfi þau vilja skapa. Mörg fyrirtæki sem byggja á fjarskiptatækni eru í fullri samkeppni við heimsmarkaðinn og þurfa að búa við bestu hugsamlegu aðstæður. Þetta á sérstaklega við um þau fyrirtæki sem vilja nýta sér nýjustu tækni.

Það er ekki hlutverk stjórnvalda að vega eða meta hvaða starfsemi á þessum markaði eigi rétt á sér eða sé líkleg til að skila einstaklingum, fyrirtækjum eða ríkissjóði mestum hag af nýrri tækni.

Við viljum ekki sérstaka, afmarkaða fyrirgreiðslu, heldur viðsiptaumhverfi sem gefur möguleika á sem mestri grósku á þessu sviði.

Því teljum við fullkomlega ósættanlegt að Landsímanum verði veittur eignarréttur á grunnetinu heldur verði farnar aðrar leiðir til að tryggja rekstur, uppbyggingu og viðhalds þess.

Fyrir hönd Félags Netverja
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
ragnar@netverjar.is


Fréttir

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna