aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Fréttir:   Félagið | Baráttan | Netið | - | Eldri fréttir | Heimildir |

Af netinu


Öryggi hjá bönkunum - hvað er það? - (02.03.2001)

Bankarnir geyma peningana okkar á glámbekk.

Í þessari frétt á Vísi.is kemur fram að bankarnir sjái ekkert að því að hver sem er geti tekið peninga af reikningum landsmanna, og gefið krabbameinsfélaginu. Það eina sem þarf er kennitölu, og kreditkorta- eða reikningsnúmer, sem eru langt frá því að vera leyndarmál.

Bankarnir virðast jafnframt telja að það sé í lagi að leggja þá byrði á herðar viðskiptavina sinna að þeir fylgist sjálfir með í heimbönkum og á yfirlitum hvort verið sé að stela af þeim - og þá spyr maður sjálfan sig, til hvers eru bankarnir eiginlega?

Fyrir hönd félagsins hringdi undirritaður í Íslandsbanka rétt í þessu, og spurði þá hvort það ætti eitthvað að laga þessi mistök. Ég bíð nú eftir nú eftir svari.

- Bjarni Rúnar Einarsson (bre@netverjar.is)

Uppfært: Bankarnir hafa þegjandi og hljóðalaust bætt töf og tilkynningu bréfleiðis við ferlið. Þetta bætir ástandið mjög mikið, en hefur áfram þann eiginleika að byrðin er öll hjá neytandanum þegar eitthvað fer úrskeiðis - maður þarf sjálfur að hafa fyrir því að hafa samband við bankann og leiðrétta, og ef maður er erlendis meðan bréfið berst eða ef bréfið týnist, þá er maður í jafn vondum málum og áður.


Fréttir

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna