aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Fréttir:   Félagið | Baráttan | Netið | - | Eldri fréttir | Heimildir |

Viðtal

Viðtal Eggerts Skúlasonar við Guðmund Björnsson forstjóra Pósts og síma hf. í fréttaþættinum 19-20 á Stöð 2 29. október 1997.

Fá mál hafa vakið upp jafn mikil viðbrögð í samfélaginu og gjaldskrárbreyting sem Póstur og sími kynnti í byrjun vikunnar. Póstur og sími heldur því fram að 80% hækkun á mínútugjaldi innanbæjar og ríflega 40% lækkun á símtölum milli gjaldsvæða þýði í raun tekjulækkun fyrir stofnunina uppá 100 milljónir króna. Fjölmörg samtök og einstaklingar hafa dregið þessar fullyrðingar í efa. Hingað er kominn forstjóri Pósts og síma hf., Guðmundur Björnsson.

Eggert Skúlason: Vertu velkominn, Guðmundur. Landið verður eitt gjaldsvæði 1. nóvember og við skulum aðeins rifja upp helstu breytingarnar. Mínútan í innanbæjarsímtölum hækkar úr 1,11 kr. í 1,99 kr. Sömuleiðis þá lækkar langlínan úr 4,15 kr. í 1,99 kr. Svargjaldið er óbreytt og við þessu er það að bæta að símtöl til útlanda lækka að meðaltali um 22%.

Þið haldið því fram Guðmundur að þetta þýði tekjutap fyrir ykkur. Og segir raunar á sama tíma að símareikningur meðalfjölskyldu muni hækka óverulega. En þið neitið að gefa upp forsendur fyrir þessum útreikningum þannig að stofnanir, fjölmiðlar og aðrir geti áttað sig á þessu. Af hverju?

Guðmundur Björnsson, forstjóri Pósts og síma hf.: Þetta er alveg rétt sem þú ert að segja að hér er um að ræða nokkuð víðtæka breytingu á gjaldskrá fyrir póst og simaþjónustu eða símaþjónustu, fyrirgefðu. Við erum að gera landið að einu gjaldsvæði í samræmi við ákvörðun Alþingis þar um núna í desember síðastliðnum og við erum að lækka gjöldin til útlanda all verulega.

Eggert: Þetta er allt rétt en af hverju gefið þið ekki upp þessar forsendur. Svo ég vitni í leiðara DV fyrsta setning, fullyrðing: “Breytingar á gjaldskrá Símans verða notaðar til að afla Símanum meiri tekna.³

Guðmundur Björnsson: Já, ástæðan fyrir þessu er einfaldlega sú að nú um næstu áramót skellur á að fullu full samkeppni í fjarskiptaþjónustu á Íslandi. Frá og með næstu áramótum munu aðilar geta fengið leyfi til fjarskiptaþjónustu, þeir munu geta fengið leyfi til að bjóða upp á mililandasímtöl, símtöl innanlands og símtöl innanbæjar.

Eggert: Þú ert að segja nei við mig?

Guðmundur Björnsson: Ég er að segja nei við þig, það er nákvæmlega rétt vegna þess að við þurfum að eiga okkar viðskiptaleyndarmál. Það er í rauninni ekki gerlegt af okkar hálfu að upplýsa komandi keppinauta um hvernig tekjuskiptingin er innan fyrirtækisins, hvaða þjónustu við seljum á þessu verði og hinu verðinu eftir því hvert þjónustan fer og svo framvegis.

Eggert: En gleymum því ekki þó að þið verðið ekki lengur með einkaleyfi frá ríkinu til að reka síma eftir áramót þá er það fyrirsjáanlegt að þið verðið áfram í einokunaraðstöðu á markaðnum. Og af hverju má ekki gefa þetta upp, við eigum jú öll þetta fyrirtæki ennþá?

Guðmundur Björnsson: Já, sem betur fer eigum við nú öll fyrirtækið en ég held að það sé miklu styttra í þessa samkeppni en þú segir. Við þekkjum þetta úr nágrannalöndunum að þar skellur samkeppnin mjög fljótt og mjög hratt á og ég reikna fastlega með að erlendir aðilar horfi bjartsýnisaugum á þennan íslenska markað þó hann sé ekki stór.

Eggert: En er þetta ekki, og ég verð nú raunar að vitna í fólk sem hefur hringt hingað og fleiri, er þetta ekki í raun og veru bara hroki gagnvart þjóðinni að koma ekki fram og sýna þetta er sá hluti sem hækkar, þetta er sá hluti sem lækkar, gjörið þið svo vel, vegna þess að fólk trúir ykkur ekki eins og staðan er núna.

Guðmundur Björnsson: Mér þykir auðvitað miður ef fólk trúir okkur ekki. En ástæðan fyrir því að við viljum ekki upplýsa þetta er sú sem ég var að nefna.

Eggert: Þið grædduð á árinu 1996 ef ég tek Póstinn frá, þá grædduð þið 2.900 milljónir króna. Þetta samsvarar þeim hagnaði sem nokkur af stærstu fyrirtækjum á Verðbréfaþingi Íslands, Eimskipafélagið, Síldarvinnslan, Samherji, Esso, SR-Mjöl og dugar varla til, hvað gerið þið við alla þessa peninga?

Guðmundur Björnsson: Ég er nú sérstaklega ánægður með að fyrirtæki allra landsmanna skuli ganga vel. Í öðru lagi þá er nauðsynlegt fyrir...

Eggert: En fyrr má nú ganga vel ef þið komið enn einu sinni, menn fullyrða að þetta sé hækkun og að þið stefnið í að græða 3,5 milljarða á næsta ári?

Guðmundur Björnsson: Nei, þetta er ekki hækkun, þetta er lækkun og ég reikna ekki með að við náum 3 milljónum á þessu ári, ætli það verði ekki frekar rúmlega tveir.

Eggert: En fólk trúir þér ekki. Við höfum séð mótmæli frá þingflokki jafnaðarmanna, eldri borgurum, borgarráði Reykjavíkur, fjölmiðlar trúa ykkur ekki, internetfyrirtæki draga þetta í efa. Verðið þið ekki að gjöra svo vel?

Guðmundur Björnsson: Nei, þú talar eins og það sé ekki mikið eftirlit með Pósti og síma. Það er þannig með Póst og síma eins og fjarskiptafyrirtæki úti í heimi að fyrirtækið er undir ströngu eftirliti. Við erum undir eftirliti löggjafans sem setur lög og reglur eða lögin um fjarskipti. Við erum undir eftirliti samgönguráðherra sem þarf að staðfesta gjaldskrána okkar. Við erum undir eftirliti Póst- og fjarskiptastofnunar sem fylgist á sama hátt og t.d. oft til í Englandi með fjarskiptarekstrum og svo bætist Samkeppnisstofnun við sem við þurfum auðvitað að svara þeim líka.

Eggert: Já, en óttastu þeirra niðurstöðu?

Guðmundur Björnsson: Nei, ég geri það reyndar ekki.

Eggert: En í alvöru talað og í hreinskilni sagt, eins og oft er nú notað í svona spjalli, heldurðu að þið standist þessa orrahríð, það er margt sem á eftir að koma. Það er mótmælafundur á Austurvelli klukkan þrjú á föstudag, þetta mál verður tekið upp á Alþingi á mánudag. Er ykkur stætt á að halda ykkur við þetta?

Guðmundur Björnsson: Ég tel að við séum með gott mál og við ætlum okkur að komast í gegnum þetta.

Eggert: En það veit enginn að þetta er gott mál?

Guðmundur Björnsson: Jú, jú, stjórnvöld vita það. Og af því þú ert að tala um Alþingi þá vil ég bara minna á að lögin um að landið skuli vera eitt gjaldsvæði ekki síðar en á miðju næsta ári voru samþykkt samhljóða á Alþingi.

Eggert: En það var ekki tekið fram í þeim lögum að það ætti að hækka gjaldskrána?

Guðmundur Björnsson: Nei, en það datt nú væntanlega engum í hug að það væru bara lækkanir og engar hækkanir, svoleiðis er ekki hægt að taka ákvarðanir varðandi símagjöld á Íslandi.

Eggert: Þannig að þú ert fastur fyrir?

Guðmundur Björnsson: Ég er mjög fastur fyrir já.

Eggert: Segjum þetta gott, þakka þér fyrir komuna.

Guðmundur Björnsson: Sömuleiðis takk.


Stöð 2
Allur réttur áskilinn. ©1997 Íslenska útvarpsfélagið.

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna