aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Fréttir:   Félagið | Baráttan | Netið | - | Eldri fréttir | Heimildir |

Viðtal

Viðtal Eggerts Skúlasonar við Davíð Oddsson, forsætisráðherra, í fréttaþættinum 19-20 á Stöð 2 30. október 1997.

Eggert: Hvað finnst þér um framkvæmd Pósts og síma og gjaldskrárbreytinguna í tengslum við það að gera landið allt að einu gjaldsvæði?

Davíð Oddsson, forsætisráðherra: Ég hef talið það vera skynsamlegt að gera landið að einu gjaldsvæði. Og það var rætt þannig í þinginu og menn vildu fara frekar hratt í dæmi að gera landið að einu gjaldsvæði, það væri ekki efni til þess lengur að hafa þann mismun sem þar hefur verið á. Á hinn bóginn er ég ekki alveg sannfærður um þær tölur sem nefndar hafa verið og mun fara ofan í þær og óska eftir svona gleggri skýringum og upplýsingum á því að svo mikillar hækkunar sé þörf til þess að ná þeim markmiðum. Ég verð að segja það að ég hef svona ákveðnar efasemdir um það.

Eggert: Muntu segja við Halldór Blöndal, svona gera menn ekki?

Davíð Oddsson: Nei við munum hittast á morgun við Halldór og hann er ekki í bænum núna og við höfum talað saman og við munum hittast á morgun og fara þá yfir þau gögn sem liggja til grundvallar, ég hef ekki séð þau og vil sjá þau, til þess að sannfærast um að svo mikil hækkun sé nauðsynleg, ég hef svona efasemdir um það.


Stöð 2
Allur réttur áskilinn. ©1997 Íslenska útvarpsfélagið.

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna