ađalsíđa netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur ţví miđur niđri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum ţess veriđ lokađ, en ţessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróđleiks um ţađ sem á undan hefur gengiđ.

Rót:   Baráttumál | Ţjónusta | Fréttir | Umrćđa | Um Netverja | Skráning |
Fréttir:   Félagiđ | Baráttan | Netiđ | - | Eldri fréttir | Heimildir |

Frétt

Frétt Brodda Broddasonar í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins hinn 1. nóvember 1997.

Frá og međ deginum í dag er landiđ allt eitt símagjaldsvćđi. Innanbćjarsímtöl hafa hćkkađ mikiđ í verđi en langtímasímtölin eru ódýrari en áđur. Ţađ kann ađ vera ađ einhverjir haldi ekki alveg ţrćđinum í símagjaldskrármálum ţessa dagana, enda eru yfirlýsingar ráđamanna og fréttir ekki ţćr sömu frá degi til dags og gjaldskrár taka breytingum án ţess ađ gera ţađ.

Í dag er fyrsti nóvember og í dag breytist gjaldskrá símans í samrćmi viđ ţćr breytingar sem kynntar voru í byrjun ţessarar viku. Millilandasímtöl eru frá og međ deginum í dag, nćstum ţví fjórđungi ódýrari en ţau voru. Hver mínúta í símtali til Danmerkur er 10 kallinum ódýrari í dag en í gćr, 17 krónur lćkkun er á Ameríkumínútunni. Ţá er landiđ allt eitt gjaldsvćđi, m.ö.o., ţađ er sama hvert á land er hringt, jafnlangt símtal er jafnt dýrt. Í dag kostar ţriggja mínútna símtal innanlands ađ degi til, 9 krónur og 30 aura en kostađi í gćr tćpar 7 krónur innanbćjar. Milli svćđa kostađi ţađ í gćr hins vegar 16 krónur. Klukkutíma símtal kostar í dag rúmlega 120 krónur en kostađi í gćr, tćpar 70 krónur innanbćjar, ţađ kostađi hins vegar miklu meira milli svćđa. Međ breytingunum er jafnframt búiđ ađ samrćma skrefafjölda í fastagjaldi símans, nú verđa ţau 200 en ţau voru 400 á landsbyggđinni.

Ţetta var allt saman kynnt fyrir tćpri viku. Ţá brast hins vegar á mótmćlaalda sem náđi hámarki í gćr, ţegar segja má ađ forsćtisráđherrann hafi gengiđ til liđs viđ uppreisnarmenn. Niđurstađan varđ sú ađ aftur verđur gjaldskránni breytt. Hvenćr ţađ verđur liggur ekki fyrir en nćsti stjórnarfundur Pósts og síma er á föstudaginn, 7. nóvember sem er byltingarafmćli gömlu Sovétríkjanna.

Ekki fyrr en einhvern tíma eftir ţann fund verđur hinn margmótmćltu glćnýju gjaldskrá breytt, til ţess sem samgönguráđherrann kynnti í gćr. Ţađ verđur heldur ekki fyrr síđar í haust ađ Póstur og sími mun opinbera ţćr forsendur sem liggja til grundvallar gjaldskrárákvörđunum. En ţótt Póstur og sími hf. taki á sig 100-400 milljóna króna kostađ međ nýjum gjaldskrám, ţá er ekki eins og ţađ sligi fyrirtćkiđ ţví hagnađurinn á ţessu ári verđur vćntanlega um 2 milljarđar króna.


Ríkisútvarpiđ
Allur réttur áskilinn. ©1997 Ríkisútvarpiđ.

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síđuna