aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Þjónusta:   Ráðgjöf | Hugbúnaður | Nafnspjöld | Leiðbeiningar |
Leiðbeiningar:   Hugtök | Vandamál | Tækni |
Hugtök:   Orðalisti |

Orðalisti netverja.

Listinn er í vexti en er afar stutt kominn enn. Spurningar, athugasemdir eða viðbætur eru vel þegnar.


Aðgangsveita(ndi)
Internetþjónusta.
Cracker
Krakker, krakkari. Tölvuglæpamaður, innbrotsþjófur, vondur hakkari.
Fréttahópur
Fréttaráðstefna, News-group á USENET ráðstefnukerfniu. Dæmi um nöfn: alt.pets.cats og is.netverjar
Hacker
Hakker, hakkari. Óforbetranlegur fiktari - oft nörd af hörðustu sort. Hakkerar njóta þess að kynna sér vélbúnað og hugbúnað inn og út og beita oft afar óhefðbundnum (en snjöllum) aðferðum til að yfirstíga tæknilegar takmarkanir og ná settum markmiðum.
Einnig er orðið notað yfir tölvuþrjóta, og hefur þá svipaða merkingu og orðið cracker. Að sumra mati (sérstaklega þeirra sem vilja láta kalla sig "hacker" án þess að bendla sig við glæpastarfsemi) er þetta misnotkun á orðinu.
Internetþjónusta
Sá aðili sem veitir þér netsamband.
ISP
Internet Service Provider. Internetþjónusta.
Kjötheimur/-ar
"Ótengdi" heimurinn utan netsins. Meiningin er ekki neikvæð á neinn hátt.
Krækja
Hypertext-link. Linkur, eða vísun sem maður getur fylgt á vefsíðum.
Netfang
E-mail address, Tölvupóstfang. Er alltaf á forminu xxxxx@yyyyy.zz.
Ruslpóstur
(e. Spam). Hverskyns sendingar sem innihalda óumbeðninn áróður og "kynningarefni", hvort sem er í gróða- eða hugsjónaskyni. Skilgreining Ísnet.
Saxbauti
Spam.
Snail-mail
Sniglapóstur.
Sniglapóstur
Venjulegur gamaldags bréfapóstur með frímerkjum.
Spam
Ruslpóstur.
Tölvupóstfang
Netfang.
URL
Uniform Resource Locator. Stöðluð aðferð til að vísa á efni á netinu. Vefslóðir eru ein tegund af URLum. Aðrar tegundir URLa byrja á: mailto:, ftp://, gopher:// og news:
Veffang
Vefslóð sem bendir á heimasíðu einhvers. Sambærilegt við "heimilisfang".
Vefslóð
Vísun á (eða URL fyrir) síðu á vefnum. Allar vefslóðir byrja á http://. Sjá einnig Veffang.

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna