Nafnspjöld félagsmanna.
Skráðum félögum mun bjóðast að búa sér til einfalda og nokkuð staðlaða vefsíðu, með einföldum upplýsingum um sig. Þetta nafnspjald yrði vistað á vefþjóni netverja undir veffanginu http://www.netverjar.is/xxx. Einnig er áætlað að bjóða upp á varanlega vísun (redirect) á heimsíðu félaga, en sú þjónusta kæmi í stað nafnspjalds.
Samhliða þessari þjónustu munu félagsmenn fá sitt eigin netfang (xxx@netverjar.is) sem vísar áfram á rétt netfang viðkomandi. Þónokkrum netföngum var úthlutað til stofnfélaga snemma árs 1998, en fleiri skref hafa enn ekki verið stigin.
Þessi þjónustuliður er enn í undirbúningi.
|