Ráðgjöf.
Félag íslenskra netverja, býður ókeyðpis ráðgjöf til handa hinum almenna netverja. Ekki er ætlunin að ráðast inn á starfssvið ráðgjafarfyrirtækja, eða netþjónustuaðila, heldur frekar að veita almenna ráðgjöf og aðstoð.
Leitast verður við að vísa á rétta aðila, sérfróða um viðkomandi málefni, og jafnvel (ef við á) að leggja málið undir hinn almenna félagsmann á póstlistum félagsins.
Ennfremur tekur félagið að sér að annast milligöngu í viðkvæmum málum, og tekur þá stöðu trúnaðarmanns hins almenna netverja. Í hinu íslenska netsamfélagi í dag er mikill skortur á óháðum trúnaðaraðila fyrir netverja.
Slíkur trúnaðaraðili þarf að hafa sérþekkingu á málefnum sem varða netið, og því þykir félaginu sér í raun skylt að taka að sér þetta hlutverk.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vantar ráðgjöf, sendu þá tölvupóst á radgjof@netverjar.is .
|