Um Félag íslenskra netverja
Félagið, innviðir þess, störf og starfshættir.
Félag íslenskra netverja er hagsmunasamtök netnotenda á Íslandi og er rekið í sjálfboðavinnu af áhugasömum einstaklingum úr röðum netnotenda. Félagið var stofnað til þess að netverjar ættu sér einhvern málsvara eða nokkurs konar neytendasamtök, Fram til þessa höfðu notendur á netinu verið dreifður og ósamstæður hópur sem var harla lítt sýnilegur öðrum. Þess vegna hætti þeim sem ekki þekktu netið mikið, til þess að vanrækja það og líta fram hjá hagsmunum netverja.
Með félaginu eignast Netverjar eina rödd, sem getur barist fyrir þeim málum, sem sameina okkur.
Félagið var stofnað með skömmum fyrirvara að Hótel Loftleiðum sunnudaginn 2. nóvember 1997. Kveikjan að félagsstofnuninni var óvænt og ósvífin gjaldskrárbreyting Pósts og síma heitins, sem virtist sérstaklega beint gegn Netverjum. (Nánar um tilurð félagsins.)
Hins vegar var þörfin á félagsskap sem þessum brýn, eins og áður sagði, burtséð frá gjaldskrárhækkuninni, því notendur Netsins á Íslandi eru fjölmargir, en enginn hefur sinnt hagsmunagæslu þeirra fram til þessa.
Markmið félagsins er að tryggja Netinu á Íslandi þau skilyrði sem þarf til þess að Ísland verði öflugur og virkur þáttakandi í því upplýsingaöldinni sem mannlegt samfélag mun byggja á um ókomin ár.
Við skorum á alla íslenska Netnotendur til þess að ganga í félagið, svo það endurspegli Netverja með trúverðugum hætti og geti beitt sér í þeirra þágu.
|