Félagsstarfið
Netverjar eru dreifður hópur; þá er að finna hvar sem er á landinu, í öllum stéttum, öllum flokkum, á öllum aldri og svo framvegis. Aukin heldur eru þeir fjölmennur hópur og allt þetta gerir það erfiðara en ella fyrir félagið að halda uppi hefðbundnu félagsstarfi. Til allrar hamingju höfum við Netið, þennan nútímalega samskiptamiðil, til þess að skiptast á skoðunum og ráða ráðum okkar.
Vettvangur hins almenna félagsstarfs er fyrst og fremst netið sjálft, en eftirfarandi þættir eru mest áberandi:
Póstlistar
- Almennar umræður og skoðanaskipti með tölvupósti.
Ráðstefnusvæði
- Netráðstefnan news:is.netverjar er hluti af hinu gamalkunna UseNet ráðstefnukerfi. Umræðan á póstlistunum er vistuð þarna en henni til viðbótar skapast oft líflegar umræður á ráðstefnunni alls óháðar póstlistunum.
Netkosningar
- Netkosningar eru nýr og spennandi möguleiki sem er í senn skilvirkur og nútímalegur, og jafnar mikið stöðu félagsmanna vítt og breitt af landinu. Hingað til hefur verið kosið einu sinni með tölvupósti um lagabreytingartillögur eftir aðalfund félagsins í ágúst 1998.
Kjötheimsfundir
- Þótt félagsmenn gjarnan vildu þá verður auðvitað ekki hjá því komist að hittast einhverntíman utan netsins. Aðalfundir hafa t.d. hingað til verið haldnir í kjötheimi, og eins reynir stjórnin að hittast reglulega. Það er yfirlýst stefna félagsins að félagsmenn skuli hittast minnst einu sinni á ári til þess að styrkja tengslin og bæta félagsandann.
IRC fundir
- Fundir á spjallrásum IRC-netsins hafa ekki enn verið haldnir, en ekkert er því til fyrirstöðu að slíkir fundir verði haldnir í framtíðinni. IRC fundir geta haft skipulag mjög svipað hefðbundnum kjötheimsfundum, þar sem einn fundarstjóri er skipaður og sá gefur gestum spjallrásarinnar svo orðið einum í einu. Fundargestum er svo frjálst að ræða saman á meðan á öðrum spjallrásum.
|