aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Um Netverja:   Netföng | Félagsstarfið | Lög félagsins | Stjórnin | Fjármál | Skjalasafn |

Lög Félags íslenskra netverja.

I. Nafn og aðild

1. Félagið heitir Félag íslenskra netverja. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. Félagið er opið öllum þeim einstaklingum hér á landi, sem vilja vinna að markmiðum þess, sbr. ákvæði II. kafla.

II. Markmið og verkefni

3. Markmið félagsins er að berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum netverja og standa vörð um frjáls tjáskipti og viðskipti á Netinu.

4. Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að standa að fundum, útgáfustarfsemi og hvers kyns upplýsingagjöf um málefni sem tengjast Netinu. Félagið skal fylgjast með og hafa áhrif á löggjöf, reglugerðir og aðgerðir íslenskra stjórnvalda sem tengjast Netinu og notkun þess. Jafnframt skal félagið fylgjast með alþjóðlegri þróun á þessu sviði.

III. Stjórn og starfsemi

5. Í stjórn félagsins sitja formaður og átta stjórnarmenn, sem kjörnir eru á aðalfundi skv. 11. grein. Formaður skal kjörinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Stjórn skal sjálf skipta með sér verkum og velja varaformann, ritara og gjaldkera.

6. Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum þess milli aðalfunda. Hún skal koma saman til fundar eftir því sem þörf krefur. Formaður skal boða stjórnarfundi og skal fundarboð sent stjórnarmönnum með viku fyrirvara nema brýna nauðsyn beri til annars. Fari einhver stjórnar- manna fram á fund skal orðið við beiðni hans og fundur boðaður eins fljótt og auðið er.

7. Stjórn er ákvörðunarbær ef að minnsta kosti 6 stjórnarmenn sitja fund. Við ákvarðanatöku gildir einfaldur meirihluti. Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði formanns úrslitum.

8. Stjórn félagsins getur boðað til almennra félagsfunda svo oft sem þörf krefur. Komi fram krafa um fund frá að minnsta kosti 10 félagsmönnum skal stjórn boða til fundar eins fljótt og auðið er. Almennir félagsfundir geta ályktað í nafni félagsins um málefni sem tengjast markmiðum þess.

9. Fjármál félagsins skulu vera í höndum gjaldkera. Heimilt er stjórn að ákveða félagsgjöld en að jafnaði skal leitast við að láta einstaka viðburði eða aðgerðir á vegum félagsins standa undir sér. Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lagðir fram á aðalfund og bornir þar upp til samþykktar.

IV. Aðalfundur

9 gr. Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok nóvember ár hvert. Boða skal til aðalfundar á tryggilegan hátt með tilkynningu til allra félagsmanna með að minnsta kosti viku fyrirvara ef um netfund er að ræða annars tveggja vikna fyrirvara. Dagskrá skal fylgja aðalfundarboði auk tillagna til lagabreytinga ef einhverjar eru. Aðalfundur er lögmætur og ákvörðunarbær ef til hans er boðað í samræmi við lög félagsins.

10 gr. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir fullgildir félagsmenn. Sérhver félagsmaður hefur eitt atkvæði. Atkvæði skal greiða með rafpósti eða hverri þeirri aðferð sem hentar best hverju sinni Hægt er að fara fram á leynilega kosningu.

11. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Reikningar.
  3. Kosning formanns, átta stjórnarmanna og tveggja endurskoðenda.
  4. Lagabreytingar.
  5. Önnur mál.
Heimilt er að breyta röð dagskrárliða með samþykki aðalfundar.

12. Heimilt er stjórn að boða til aukaaðalfundar ef brýna nauðsyn ber til. Boða skal til aukaaðalfundar með sama hætti og til aðalfundar. Er aukaaðalfundur þá ákvörðunarbær um sömu atriði og aðalfundur.

V. Lagabreytingar

13. Tillögur til lagabreytinga skulu berast stjórn í tæka tíð þannig að unnt sé að kynna þær í aðalfundarboði, sbr. 9. gr.

14. Til þess að lagabreytingartillaga nái fram að ganga þarf hún að hljóta stuðning að minnsta kosti 2/3 hluta fundarmanna á aðalfundi.

15. Tillögur um slit félagsins skulu sæta sömu meðferð og lagabreytingartillögur. Verði slit félagsins samþykkt skal aðalfundur jafnframt ákveða á hvern hátt verði farið með eignir félagsins og skuldir. Skal miða við að láta eignir renna til aðila, sem starfar að sömu eða svipuðum markmiðum og félagið.

16. Lög þessi eru samþykkt á aðalfundi félagsins, sem haldinn er í Reykjavík 30. ágúst 1998 og taka þegar gildi.

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna