aðalsíða netverjavefsins Félag íslenskra netverja

ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.

Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.

Rót:   Baráttumál | Þjónusta | Fréttir | Umræða | Um Netverja | Skráning |
Um Netverja:   Netföng | Félagsstarfið | Lög félagsins | Stjórnin | Fjármál | Skjalasafn |
Skjalasafn:   Fundagerðir aðalfunda | Ályktanir og áskoranir | Ávörp formanna | Kosningar |

Áskorun

Sent til Böðvars Bragasonar, lögreglustjórans í Reykjavík, og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, borgarstjóra. Afrit send á fjölmiðla.

Reykjavík 28.10.1998

Stjórn Félags íslenskra Netverja skorar á borgaryfirvöld og lögreglustjórann í Reykjavík að veita myndum úr öryggismyndavélum í miðbænum beint út á Netið.

Ennfremur má leiða að því rök, að slíkur aðgangur auki aðhald þar sem almenningur getur athugað sjálfur hvort til séu sönnunargögn um afbrot. Ekki er því ósennilegt að menn leggi frekar fram kærur, sem þeir hefðu ella ekki talið ómaksins virði. Eins má ætla að aðstandendur ungmenna hafi áhuga á að geta skoðað ástandið í miðbænum.

Tæknin til þess arna er til staðar og er ekki kostnaðarsöm. Alþingi hefur gengið undan með góðu fordæmi og opnað starfsemi sína á Vefnum. Borgin má ekki verða eftirbátur þess. Ella bera þessar öryggisráðstafanir í miðbænum keim stóra bróðurs í stað þess að boða opnara og gegnsærra þjóðfélag.

Félag íslenskra Netverja er boðið og búið til þess að vera yfirvöldum innan handar við uppsetningu kerfis sem þessa.

Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 569 1166. Til frekari glöggvunar er einnig bent á skýrslu, sem Evrópuþingið lét gera um þetta og skyld mál:


Andrés Magnússon (sign)
formaður Félags íslenskra netverjq

 
© 2000, 2001 F.Í.N. | webmaster@netverjar.is | kort af vefnum | efst á síðuna