Ávarp formanns
Nóvember 1997

Það eru gleðitíðindi að félag sem þetta sé til á Íslandi, en hingað til hafa þeir sem nota Netið ekki haft neinn málsvara. Í þessum hópi eru nú tugir þúsunda fólks á öllum aldri hvaðnæva af landinu og er svo komið að Netið er komið inn á öll svið þjóðlífssins. Upplýsingaöldin er runnin upp, en ekki fyrir öllum, því enn eru margir sem leggja stein í götu framfara.
Félag íslenskra Netverja mun beita sér fyrir því að netvæðingin nái um land allt, óháð búsetu manna, stöðu eða aldri sé þess nokkur kostur. Hér á Netinu verður heimili félagsins, starf, svo og umræðuvettvangur félagsmanna, en jafnframt er félagið fyrsti vísir að því að farið sé markvisst inn á aðra og hefðbundari miðla í kynningu málefna.
Tilurð samtakanna var sú, að eina símafélagið á Íslandi hækkaði gjöld svo að bitnaði verst á netnotendum, jafnframt sem þeim var sýnd margvísleg óvirðing. Þetta varð til þess að menn mótmæltu sem einn og stofnuðu með sér samtök. Mótmælin báru þann árangur að forsætisráðherra greip í taumana og leiddi það til að einokunarfyrirtækið lækkaði hækkunina að hluta. Þessi áfangasigur var mikilvægur, en betur má ef duga skal. Starf félagsins heldur áfram og verður á margvíslegum sviðum. Gjaldskrárbaráttan var aðeins upphafið og henni er ekki lokið, framhaldið felst í að vernda frelsi okkar allra til tjáskipta, viðskipta og menntunar á Netinu.
Eyþór Arnalds.
|