Stofnfundur Félags íslenskra netverja
Fundargerð
2. nóvember 1997
Þingsal 1, Hótel Loftleiðum
kl. 16.00.
1.
Andrés Magnússon setti fundinn, bauð fólk velkomið og stakk upp á sjálfum sér sem fundarstjóra og Valberg Lárussyni sem ritara, og voru báðir samþykktir einróma. Hann gerði jafnframt grein fyrir aðdraganda fundarboðsins og tilefninu, sem væri að stofna hagsmunasamtök íslenskra Netverja. Aðdragandinn væri nokkuð sértækur, sumsé gjaldskrárbreyting Pósts & síma, sem hann kvað vera aðför að Netverjum og að stöðvun þess arðráns brýnasta viðfangsefni félagsins. Hingað til hefðu Netverjar lítil áhrif haft sem hópur, enda samfélagið dreift í eðli sínu. Hins vegar hefpu atburðir síðustu daga sýnt svo ekki yrði um villst hversu nauðsynlegt væri að Netverjast sameinuðust um greundvallarhagsmuni sína og töluðu einni röddu. Jafnframt minnti hann á að huga þyrfti að fleiri hagsmunum Netverja og nefndi sérstaklega að standa þyrfti vörð um frelsi til tjá- og viðskipta á Netinu.
2.
Fyrsti ræðumaður var Viktor B. Kjartansson, forritari og varaþingmaður Reykjanesskjördæmis. Hann greindi frá óeðlilegri inngöngu Pósts & Síma á netmarkaðinn í skjóli einokunaraðstöðu sinnar. Hvað gjaldskrármálin varðaði minnti Viktor að Póstur og sími tönnlaðist á samanburði við þau nágrannalönd okkar sem símkostnaður væri hæstur í. Hins vegar væri aldrei minnst á lönd eins og Bandaríkin þar sem innansvæðasímtöl væru ókeypis. Hér væri þróunin í þveröfuga átt. Viktor gagnrýndi einnig stefnu P&S gagnvart netfyrirtækjum og eins að alið væri á misskilningi um notkun Netsins sem yrði að leiðrétta. Stjórnendur P&S gerðu því skóna að á Netinu væri fólk fyrst og fremst að leika sér, en vitaskuld dæmdu þessi ummæli sig sjálf og mælendur þeirra líka.
3.
Annar ræðumaður var Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri þróunarsviðs OZ. Eyþór byrjaði á að lýsa stöðu Íslands: hér væri gott efnahagsástand, en sjórinn væri fullnýtt auðlind og því fælist mesti vaxtarbroddur atvinnulífsins í mannviti. Hér sem annars staðar á Vesturlöndum væri uppgangurinn örastur í tölvugreinum og flestu því, sem að Netinu lyti. Hann sagði stefnu P&S ganga þvert á áður kynnta stefnu ríkisstjórnarinnar í upplýsingamálum. Netbúar væru fjölmennasti þéttbýlishópur á Ísalndi að höfuðborgarsvæðinu undanskildu. Netvæðingin væri haldbesta byggða- og atvinnustefna sem byðist, því með henni stæði Ísland jafnfætis öðrum löndum heims og styrkleiki okkar, sem í mannauðinum fælist gæti notið sín.
4.
Þriðji ræðumaður var Bragi Haldórsson hönnuður hjá I/O Intranet. Hann sagði ranghugmyndir um Netið afar algengar meðal þeirra, sem þangað hefðu ekki eða lítið komið. Út af fyrir sig væri æskilegt að snúa því tafli við með félagsstofnun sem þessari, en aðgerðir P&S hefðu gert félagsstofnunina mjög aðkallandi. Hins vegar mætti ekki gleyma því að mörg önnur hagsmunamál væru þar fyrir utan og þó svo þau sætu í sarpinum enn að sinni væri hægt að sinna þeim hvað liði því nú hefðu Netverjar loks málsvara, sem barist gæti fyrir þeim.
5.
Fundarstjóri reifaði drög að lögum félagsins, sem legið höfðu fyrir á fundinum, og bar þau undir samþykkt fundarins. Lögin voru samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
6.
Að lögunum samþykktum var gengið til kosninga á embættismönnum félagsins. Fundarstjóri tilkynnti að Eyþór Arnalds hefði fallist á að taka kjöri til formennsku og lýsti eftir fleiri hugmyndum. Engar bárust og var Eyþór kjörinn formaður með lófataki.
7.
Næst bar að kjósa 8 stjórnarmenn. Fundarstjóri kynnti að uppástungur hefðu borist um sjö manns, þau Braga Halldórsson, Friðfinn Hagalín, Gunnar Grímsson, Maríu Edwardsdóttur, Ólaf Ragnar Ólafsson, Pétur Þorsteinsson og Viktor B. Kjartansson, en þar sem einn mann vantaði enn til að fylla stjórn bauð fundarstjóri sjálfan sig fram. Gunnar Grímsson baðst undan kjöri í aðalstjórn og stakk upp á Guðmundi Ragnari Guðmundssyni. Fleiri uppástungur bárust ekki og lýsti fundarstjóri stjórnina sjálfkjörna.
8.
Eyþór Arnalds kynnti drög að ályktun fundarinns, sem var samþykkt samhljóða.
9.
Fundarstjóri stakk upp á að endurskoðendur reikninga félagsins yrðu þeir Þórarinn Stefánsson, Evrópumarkaðsstjóri OZ, og Þórður Pálsson, fjármálstjóri IOGT, og var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
10.
Gunnar Grímsson gerði grein fyrir heimasíðu félagsins sem til bráðabirgða yrði að finna á slóðinni this.is/fin en þar væri hægt að ganga í félagið á Netinu.
11.
Fundarstjóri sleit fundi um 17.00 og bauð fundargestum að þiggja kaffiveitingar frammi á gangi til skrafs og ráðagerða.
|