Aðalfundur Félags íslenskra netverja
Fundargerð
30. ágúst 1998
Veitingahúsinu Vegamótum, Vegamótastíg, Reykjavík.
Fundur settur klukkan 15.30.
Á fundinn voru mættir 19 manns.
Í upphafi fundar var fundarstjóri kjörinn Ólafur R. Ólafsson sem valdi Maríu Edwardssottur sem ritara. Að því loknu var tekið til við auglýsta dagskrá:
- Skýrsla formanns.
- Skýrsla gjaldkera.
- Kosning nýrrar stjórnar.
- Lagabreytingar.
- Önnur mál.
1. Skýrsla formanns
Eyþór Arnalds steig í pontu og skýrði stuttlega frá vinnu stjórnar
síðastliðið ár. Hann rak tilurð félgsins ásamt því hvað hafði
áunnist. Einnig velti hann framtíðinni fyrir sér og hverju félagið mætti
búast við að vinna að.
2. Skýrsla gjaldkera
Þar sem [fráfarandi] gjaldkeri Netverja mætti ekki á aðalfund tók
fundarstjóri það að sér að gera grein fyrir reikningum félagsins.
Reyndar eru þeir ekki miklir, og eina færslan í bókhaldi
félagsins er 27.000,- króna skuld sem stofnað var til vegna
stofnfundar félagsins.
3. Kosning stjórnar
Stjórnarkjör byrjaði á kosningu til formanns. Þrír gáfu kost á sér
að þessu sinni: Guðmundur Ragnar Guðmundsson, Jónas Ingi Ragnarsson
og Andrés Magnússon. Héldu þeir hver um sig stutta framboðsræðu þar
sem þeir útlistuðu hver sína stefnu. Kosningin fór fram
leynilega og fóru atkvæði þannig að Guðmundur Ragnar fékk 3 atkvæði,
Jónas Ingi 3 sömuleiðis, en Andrés Magnússon var réttkjörinn formaður
með 13 atkvæði. Tók Andrés til máls og þakkaði stuðninginn og samkeppnina.
Næst kom að almennu stjórnarkjöri og voru eftirtaldir einstaklingar í
framboði: (Svigar mekja þá sem buðu sig fram en mættu ekki á aðalfundinn)
(Atli Týr Ægisson)
Bjarni R. Einarsson
(Bjarni Þ. Gylfason)
(Eggert Jón Magnússon)
(Einar Björgvin Eiðason)
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
Ísak R. Jóhannsson
Jón Gunnar Gylfason
Jónas Ingi Ragnarsson
María Edwardsdóttir
Már Örlygsson
Ólafur Ragnar Ólafsson
Fleiri buðu sig ekki fram. Að loknu formannskjöri ákvað Guðmundur
Ragnar að draga framboð sitt til baka og er því stjórnin rétt
kjörin án atkvæðagreiðslu:
Andrés Magnússon, formaður
Bjarni R. Einarsson
Ísak R. Jóhannsson
Jón Gunnar Gylfason
Jónas Ingi Ragnarsson
María Edwardsdóttir
Már Örlygsson
Ólafur Ragnar Ólafsson
(Þarna vantar 8. mann auk formanns, en Elías Halldór Ágústsson hefur
verið tímabundið settur sem varatæknimaður og 8. meðlimurinn.)
4. Lagabreytingar
Lagðar voru fram lagabreytingartillögur við upphaf aðalfundar.
Þessar lagabreytingar eru tvær, og snerta þrjár mismunandi greinar:
Bjarni R. Einarsson og Már Örlygsson lögðu til þessar breytingar:
9 gr. Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok nóvember
ár hvert. Boða skal til aðalfundar á tryggilegan hátt með
tilkynningu til allra félagsmanna með að minnsta kosti
[viku fyrirvara ef um netfund er að ræða annars tveggja
vikna fyrirvara.]
10 gr. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir fullgildir
félagsmenn. Sérhver félagsmaður hefur eitt atkvæði. [Atkvæði
skal greiða með þeirri aðferð sem hentar best hverju sinni.
Hægt er að fara fram á leynilega atkvæðigreiðslu.]
Guðmundur Ragnar lagði til breytingar:
10 gr. Rétt til setu á aðalfundi eiga allir fullgildir
félagsmenn. Sérhver félagsmaður hefur eitt atkvæði. [Atkvæði
skal greiða með [rafpósti eða] hverri þeirri aðferð sem
hentar best hverju sinni Hægt er að fara fram á leynilega
kosningu.]
Ólafur Ragnar Ólafsson lagði því næst til eftirfarandi breytingu:
5. gr. Í stjórn félagsins sitja formaður og [sex stjórnarmenn,
þ.a. tveir varamenn.], sem kjörnir eru á aðalfundi skv. 11.
grein. Formaður skal kjörinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn
í einu lagi. Stjórn skal sjálf skipta með sér verkum og
velja varaformann, ritara og gjaldkera.
Ákvörðun var tekin um að fresta atkvæðagreiðslu, ásamt aðalfundi,
til 13. september 1998 kl. 15:00. Fer fundurinn fram á Netinu og verður þar
einungis kosið um þessar lagabreytingar.
Fundi var frestað klukkan 17:00.
María Edwardsdóttir, sign
|