![]() |
|
ATH: Starfsemi félags Netverja liggur því miður niðri.Vegna ágangs ruslpósts hefur póstlistum og netföngum þess verið lokað, en þessi vefur stendur eftir áhugasömum til fróðleiks um það sem á undan hefur gengið.
Eftirtaldir aðtilar voru í framboði til stjórnar:
Fundargestir kynntu sig lítillega (þó sumir betur en aðrir), að því loknu bauð María Edwardsdóttir sig fram sem fundarstjóra og Tolli var fenginn til að vera miðill (tengiliður kjöt- netheims). Helga Hrafns var sárt saknað á þeirri stundu, en hann var á hinum endanum. Að afloknum myndatökum var skýrsla stjórnar borin undir aðalfund. Tók það skamma stund enda skýrslan jafn þunn og viðvera formanns. Næst var borið fram ársreikningaleysi. Jón Gunnar minnti á reiking fyrir stofnfund Netverja sem er orðinn 67.000 kr eftir að vera kominn í innheimtu frá lögfræðingi. Umræðu um reikinginn var skotið á frest og talið var að síðasti formaður félagsins beri ábyrgð á honum. Næst á dagskrá var kosning stjórnar. Þröstur bar fram tillögu um að stjórnarkjöri yrði frestað og skipuð framkæmdanefnd sem að taki að sér að skipleggja og kynna aðalfund. Sú tillaga er felld og ákveðið er að kjósa stjórn sem að hafi það helst að markmiði að skipuleggja aðalfund ársins 2000 á tíma í samræmi við lög félagsins (fyrir lok nóvember) og reyna að vekja fólk til vitundar um tilvist félagsins. Rætt var um starfsemi félagsins og samskipti félagsmanna (of margir póstlistar er niðurstaðan) hvað það hafi gert (annað en að lækka gjaldskrá Landsímans; mest lítið), fjölda félagsmanna (1500 - 1??). Ákveðið var að stjórn sú sem kosin er á fundinum skipuleggji aðalfund sem halda skuli þann 15 október. Fram fóru umræður um hvert sé hlutverk stjórnar, ekki er hægt að ætlast til þess að stjórnin stýri öllum umræðum um hagsmuni netverja heldur telja fundarmenn frekar að hlutverk hennar sé að vera miðill til að skipuleggja umræðu um netið þar sem áhugasamir netverjar geti talað um sín helstu hjartans mál. Ása lagði til að fundarmenn reyni að hefja umræðu um þau mál sem séu inn á þeirra þekkingar og áhugasviði, þar sem skráðir félagsmenn séu jafn margir og raun ber vitni hljóti að vera slæmt ef að þekking þeirra og reynsla nýtist ekki öðrum netverjum. Það sé því frekar hlutverk stjórnar að skipa starfshópa en að taka ákvarðanir fyrir þann mislita hóp sem kallast Netverjar. Einnig var rætt um samskiptaleiðir, finnst sumum að póstlistar félagsins séu of margir og að frekar sé að nota kork (bulletin board) til þess að koma skoðanaskiptum á framfæri heldur en póstlista, Bjarni leggur til sambland að þessu tvennu en ekki er komist að sérstakri niðurstöðu að svo stöddu. Gengið var til formannskjörs. Frambjóðendur til formanns sem eru á staðnum taka til máls, og miðill reynir eftir bestu getu að koma helstu áherslum á framfæri á nethluta fundarins. Kosningar fóru fram leynilega, og var samþykkt á báðum endum að treysta miðli fyrir atkvæðum þeirra á netfundinum. Niðurstöðurnar kosninganna urðu á þennan veg:
Guðmundur Ragnar telst því réttkjörinn formaður. Næst var kosið í stjórn félagsins, og tók fundarstjóri við miðilstörfunum. Að afloknum miklum umræðum og uppflettingum var komist að þeirri niðurstöðu að kjósa eigi um átta stjórnarmenn. Ákveðið var að fram fari leynileg atkvæðagreiðsla þar sem menn skildu kjósa 5 af þeim 12 sem í framboði voru. Að aflokinni einni og hálfri talningu, nokkrum leiðréttingum (og reykingaferðinni) voru niðurstöður kosninga þessar:
Stjórn félagsins telst því skipuð eftirfarandi:
Elías Halldór Ágústsson Guðmundur Ragnar Guðmundsson Gunnar Grímsson Íris Björg Kristjánsdóttir Jón Gunnar Gylfason Rósa Lárusdóttir Þórhallur Hálfdánarson Þröstur Jónasson Þar sem aðalfundur var svo góðmennur sem raun bar vitni var ákveðið að fundarmönnum verði boðið að vera með á póstlista stjórnar og fengnir til að reyna að skapa umræður um þau hagsmunamál netverja sem þeir telji helst til sín. Engin önnur mál eru á dagskrá fundarins og honum er því slitið og haldið er í eldhúsið með kaffibollana og í sólina hjá Jóni í myndatöku. Sérstakar þakkir fá Síminn fyrir húsnæðið og 2 klst. símtalið og Landsteinar Ísland fyrir afnot af ferðatölvu. Fundi slitið klukkan 19:00. Þröstur Jónasson, sign | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||